Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á námskeiðinu verða reglur um réttindi starfsfólks til launa vegna óvinnufærni teknar fyrir. Óvinnufærniskilyrðið er skoðað sérstaklega og farið yfir atriði eins og tilkynningarskyldu starfsmanns, læknisvottorð, rétt til launaðra fjarvista/veikindadaga, heimild til að vinna skert starf (hlutaveikindi) og skilyrði fyrir endurkomu í starf eftir lengri veikindi (starfshæfnisvottorð). Þá er fjallað um rétt til slysatryggingar vegna varanlegrar örorku og dánarbóta. Einnig verður fjallað um fæðingar- og foreldraorlof og lög um sorgarleyfi.
• Að öðlast þekkingu og skilning á skilyrðinu um óvinnufærni
• Að kunna skil á reglum um veikindarétt og skyldur starfsfólks
• Að þekkja þær reglur sem gilda um slys, örorku og dánarbætur
• Að þekkja reglur um fæðingar- og foreldraorlof og lög um sorgarleyfi.

Fyrirlestur og umræður.
Guðný Norðdahl Einarsdóttir
Streymi
3 klst
Mæting
19.500 kr
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Þau sem koma að starfsmanna- og kjaramálum.
Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
20.02.2025 | Óvinnufærni, veikindaréttur, slysatryggingar, foreldra- og fæðingarorlof, sorgarleyfi | 09:00 | Guðný Einarsdóttir |