Aftur í námskeið

Fangelsismálastofnun | Erfið starfsmannamál - framhaldsnámskeið

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Það eru nokkur stjórnunarleg verkefni sem flestir stjórnendur eiga í erfiðleikum með að framkvæma. Annað þeirra er að ræða ófullnægjandi frammistöðu við starfsmenn og hitt er að færa slæm tíðindi eins og þegar starfsmaður fær ekki stöðuhækkun eða er sagt upp störfum. Í vinnustofunni verður farið yfir það hvernig eigi að ræða erfið starfsmannamál og færa slæm tíðindi. Bæði verður farið yfir fræðilega umfjöllun um þessi erfiðu mál og æft hvernig best er að standa að þeim. Þátttakendur fá þjálfun í aðferðum í viðtalstækni sem skila sér í betri og uppbyggilegri viðtölum.

Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu:
Agaviðtöl og leiðréttingarviðtöl
Einkenni slæmra tíðinda
Viðbrögð einstaklinga
Hvernig á að flytja slæm tíðindi?
Hvað ber að varast?

Vinnustofan er einungis fyrir þau sem eru sérstaklega boðuð á hana.

Efnistök
Að öðlast meira öryggi til að eiga við erfið starfsmannamál
Hæfniviðmið
Að öðlast meira öryggi til að eiga við erfið starfsmannamál
Fyrirkomulag
Vinnustofa
Umsjón
Eyþór Eðvarðsson
Tengiliðir námskeiðs
  • Ingibjörg Hanna Björnsdóttir - ingibjorg(hjá)smennt.is
Námsform
Staðnám
Tími
  • 26. september 2023 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Stjórnendur hjá Fangelsismálastofnun

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
26.09.2023Erfið starfsmannamál - framhaldsnámskeið09:00Eyþór Eðvarðsson