Aftur í námskeið

Viðurkenndur bókari - Opni háskólinn í HR - Fjarnám

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing
Námið skiptist í tvær lotur:

Reikningshald: Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning nemenda á meginreglum reikningshalds og því lagaumhverfi sem bókhald og reikningsskil eru byggð á. Mikil áhersla er lögð á notkun Excel.

Skattskil og upplýsingakerfi: Námskeiðið veitir nemendum almenna innsýn í skattalög og reglur varðandi skattlagningu fyrirtækja og einstaklinga. Lögð er áhersla á að bæta þekkingu nemenda á upplýsingaskyldu og verklagi varðandi virðisaukaskatt og aðra vörsluskatta. Einnig verður farið yfir grunnatriði innra eftirlits og öryggis í upplýsingakerfum.

Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi með sér tölvu í Excel hluta námskeiðsins. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð nemenda.

Upptökur af fyrirlestrum verða birtar inn á samskiptavef nemenda daginn eftir að fyrirlestrar fara fram. Tvær staðarlotur verða haldnar í Opna háskólanum í HR yfir námstímann. Staðarloturnar verða ekki teknar upp. 
Efnistök
Undirbúningur fyrir próf á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis til viðurkenningar bókara, skv. 43.grein laga nr. 145/1994 um bókhald.
Hæfniviðmið
Undirbúningur fyrir próf á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis til viðurkenningar bókara, skv. 43.grein laga nr. 145/1994 um bókhald.
Fyrirkomulag
Tími: Kennt verður 2-3x í viku, á virkum dögum, frá kl. 17:00 - 21:00.  Nánari upplýsingar er að finna í kennsluáætlun fyrir haust 2022. Kennsla fer fram í fyrirlestraformi og í dæmatímum, þar sem farið er í verklegar æfingar í Excel. Skynsamlegt er að gera ráð fyrir að þurfa að taka frí frá vinnu á helstu álagstímum. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi með sér tölvu í Excel hluta námskeiðsins.
Gott að vita

Aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.

Öðrum en aðildarfélögum Starfsmenntar er bent á að skrá sig hjá Opna háskólanum í HR, s. 599 6300.

Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.

Samstarfsaðili
Opni háskólinn í HR.
Tengiliðir námskeiðs
  • Björg Valsdóttir - bjorg(hjá)smennt.is
Námsform
Staðnám
Tími
  • 9. ágúst 2022-00:00

Lengd
0 klst
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námið er einkum ætlað starfsfólki bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og sjálfstætt starfandi bókurum.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
09.08.2022Viðurkenndur bókari00:00Opni háskólinn í HR.