Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Í hraða nútímas gleymum við oft að hlusta en leggjum ofur áherslu á að komast sjálf að í umræðunum. Hlustun er einn veigamesti þátturinn í samskiptum og tækifærið til að skilja menn og málefni.
Farið er ítarlega yfir þá tækni sem beitt er í virkri hlustun og gerðar æfingar. Með virkri hlustun áttu auðveldar með að setja þig í spor annarra og sá sem hlustað er á finnur fyrir virðingu og áhuga þess sem hlustar.
,,Ég skilaboð“ fela í sér samskiptaform þar sem við tölum út frá sjálfum okkur og segjum hvað okkur finnst í stað þess að dæma þann sem við tölum við eða segja hvað okkur finnst neikvætt í framkomu hans. Þegar við notum ég skilaboð einkennast erfið samskipti af virðingu í stað dómhörku.
Námskeiðið hentar vel til að efla gæði samskipta, virðingu og skilning milli einstaklinga.
Að geta beitt virkri hlustun.
Að þekkja og geta beitt ég skilaboðum í samskiptum.
Að geta beitt virkri hlustun.
Að þekkja og geta beitt ég skilaboðum í samskiptum.
Fyrirlestur, fyrirspurnir og samræður
SHJ ráðgjöf
Sigríður Hulda Jónsdóttir
Streymi
3 klst
Mæting og þátttaka.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Trúnaðarmenn Sameykis
Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
28.11.2023 | Bætt samskipti með virkri hlustun | 13:00 | Sigríður Hulda Jónsdóttir |