Námskeið finnst ekki

Aftur í námskeið

Netöryggisvitund

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Eru upplýsingarnar sem þú ert að nálgast á netinu réttar, er þetta falsfrétt eða er kannski verið að svindla á þér?

Hér er á ferðinni gagnvirkt námskeið á mannamáli.

Á þessu námskeiði verður farið yfir að hverju þarf að huga þegar unnið er á netinu og lögð áhersla á að kenna skynsamlega ákvörðunartöku við notkun á tölvum og ýmsum snjalltækjum.

Fjallað verður um ólíkar öryggiskröfur sem þarf að taka tillit til út frá mismunandi aðstæðum hvers og eins.

Umfjöllunarefni: 

  • Stjórnun lykilorða, góð lykilorð og fleira 
  • Margþátta auðkenning (multi-factor-authentication eða MFA)
  • Gagnrýnin hugsun
  • Falsfréttir og hvernig meta á heimildir
  • Tenglar, viðhengi, USB diskar
  • Svindl, blekkingar, svik, og annað svínarí
  • Ótti, óvissa, efi eða hræðsluáróður
  • Hvaða fótspor við skiljum eftir á netinu og hvernig hægt er að lágmarka þau
  • Góð ráð þegar kemur að persónuverndarmálum
  • Hvernig gervigreind getur ógnað þér og persónuvernd þinni 
Hæfniviðmið

Að öðlast skilning á netógnum og persónuverndarmálum
Að þekkja leiðir til að auka öryggi á netinu og hvernig gætt er að persónuvernd

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður. Upptaka verður í boði fyrir skráða þátttakendur undir Kennslugögn á Mínar síður að námskeiði loknu og verður  aðgengileg í viku.

Umsjón
Siggi Bjarnason - Öruggt Net
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Streymi
Tími
  • 11. febrúar 2026 klukkan 13:00-15:30

Lengd
2,5 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Verð
17.500 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem nota tölvur eða snjalltæki og vilja auka öryggisvitund þegar unnið er á netinu

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
11.02.2026Netörygisvitund13:00Siggi Bjarnason