Aftur í námskeið

Trúnaðarmenn Sameykis | Trúnaðarmenn sem boðberar geðheilsu - Vinnustofa

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Trúnaðarmenn gegna mikilvægu hlutverki við að gæta velferðar og hagsmuna samstarfsfólks. Vinnustofan Boðberar geðheilsu (e. Mental Health Champions) er hönnuð til að lyfta þessu mikilvæga hlutverki trúnaðarmanna og útbúa þá með verkfærum og þekkingu til að verða boðberar geðheilsu á sínum vinnustöðum. 

Vinnustofunni er ætlað að auka vitund trúnaðarmanna og skilning á andlegu heilbrigði á vinnustað og að byggja upp færni og sjálfstraust til að stuðla að opinskárri umræðu um geðheilbrigði, bera kennsl á vanda í uppsiglingu og bregðast við á viðeigandi hátt með forvarnir að leiðarljósi og hlúa að eigin geðheilbrigði og þeirra sem í kringum þau eru.

Í samræmi við  leiðbeinandi viðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um geðheilbrigði á vinnustað (2022), tekur vinnustofan á gagnreyndum leiðbeiningum stofnunarinnar til að efla geðheilbrigði, auka forvarnir og stuðla að velmegun þess starfsfólks sem stendur frammi fyrir geðheilbrigðisáskorunum á vinnustað 
sjá hér.  

Efnistök

Að fræðast um geðheilbrigði og andleg veikindi.
Að ræða og skoða persónuleg og kerfislæg viðhorf, mýtur og tungutak sem tengjast geðheilbrigði á vinnustað.
Að þekkja og geta borið kennsl á merki um neikvæða geðheilsu og streitu á vinnustað.
Að geta tekist á við sameiginlega og samfélagslega ábyrgð í hlutverki trúnaðarmanna í geðheilbrigði á vinnustað.
Að huga að hlutverki trúnaðarmanna við að hlúa á uppbyggilegan hátt að geðheilsu samhliða hlutverki sínu sem trúnaðarmenn.
Að geta greint og læri að nýta sér nauðsynlega færni fyrir samtöl um líðan og geðheilbrigði við samstarfsfólk.
Að þekkja til og skilji úrræði til stuðnings og inngripa fyrir starfsfólk.

Hæfniviðmið

Fyrirkomulag
Vinnustofa
Umsjón
Helena Skaptason Jónsdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Jóhanna Þórdórsdóttir hjá Sameyki og Sólborg Alda Pétursdóttir hjá Starfsmennt
Námsform
Staðnám
Tími
  • 21. janúar 2025 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Trúnaðarmenn Sameykis

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
21.01.2025Trúnaðarmenn sem boðberar geðheilsu09:00Helena Jónsdóttir