Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á þessu námskeiði lærir þú grunninn í Photoshop.
Þú leysir fjölbreytt verkefni þar sem þú lærir á grunnverkfæri myndvinnslu í Photoshop Elements. Þú lærir að hreinsa burt bletti og bólur af andlitsmyndum, færa eða fjarlægja fólk eða hluti af mynd, lagfæringar og litajöfnun, hvernig á að nota síur og lög ásamt því að breyta bakgrunninum. Þá lærir þú hvernig myndvinnsla er best fyrir mismunandi miðla.
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið (kennslumyndbönd, textapistlar, leiðbeiningar og verkefni) er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Námskeiðið eru sett fram sem 3 vikna kúrsar (18. klst.) Námskeiðið er þar að auki opið í 12 mánuði eftir lokadag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða