Aftur í námskeið

Þema IV | Einelti og áreitni á vinnustað, meðferð ágreinings og samskipti

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing
Hér er lögð áhersla á að efla umræðu og vitund meðal þátttakenda um einelti á vinnustað og aðgerðir gegn því. Gerð er grein fyrir hvað einelti er og hvaða aðstæður geti ýtt undir það ásamt því að ræða fyrirbyggjandi aðgerðir. Þá verður einnig fjallað um birtingarmyndir kynferðislegrar áreitni á vinnustað og viðbrögð við því. Rætt verður um hvað felst í því að vera fórnarlamb, gerandi og áhorfandi. Þá verður fjallað um hlutverk stjórnenda/mannauðseininga við að koma skilaboðum um hvað líðst á vinnustöðum áleiðis og nauðsyn aðgerðaáætlunar. Rætt verður hvaða úrræði hafa gefist vel. Einnig verður gerð grein fyrir lögformlegri skyldu yfirmanna til að bregðast við. Umræða verður tengd við kenningar um gildi vinnustaðarmenningar og hvernig hún þróast og breytist.
Efnistök
Að efla umræðu og þekkingu starfsfólks á einelti og kynferðislegu áreiti á vinnustað og að kenna leiðir til að takast á við einelti og áreitni á vinnustað og til hvaða úrræða má grípa.
Hæfniviðmið
Að efla umræðu og þekkingu starfsfólks á einelti og kynferðislegu áreiti á vinnustað og að kenna leiðir til að takast á við einelti og áreitni á vinnustað og til hvaða úrræða má grípa.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.
Gott að vita
Markmiðið með náminu er að svara brýnni þörf fyrir fræðslu um launamál og launaafgreiðslu og tengja það við kjarasamninga og regluverk í starfsmannamálum og á þann hátt að efla sérfræðiþekkingu starfsfólks.
Umsjón
Sara Lind Guðbergsdóttir , Sara Lind Guðbergsdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Björg Valsdóttir
Námsform
Staðnám
Tími
  • 16. janúar 2023 klukkan 09:00-13:30
  • 16. janúar 2023 klukkan 13:00-14:30

Lengd
6 klst (4,5+1,5)
Mat
90% mæting.
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð
24.750 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Launafulltrúar og þeir sem koma að starfsmanna- og kjaramálum.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
16.01.2023Einelti og áreitni á vinnustað, meðferð ágreinings og samskipti09:00Sara Lind Guðbergsdóttir