Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Um er að ræða mjög gagnlegt og áhugavert nám sem gerir miklar kröfur til nemenda. Þetta nám hentar þeim sem vilja skapa sér sterkari stöðu á vinnumarkaði með aukinni menntun og hafa áhuga á að ná frama á sviðum bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og stofnana og styrkja kunnáttu sína.
Þátttakendur þurfa að hafa góða almenna tölvukunnáttu, hafa reynslu af bókhaldsstörfum og/eða lokið grunnnámi í bókhaldi.
Námið er mjög góður undirbúningur fyrir próf til viðurkennds bókara á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um bókhald (skv. 43. grein laga nr. 145/1994).
Þeir sem skrá sig hjá Starfsmennt þurfa einnig að skrá sig hjá Promennt en þar er hægt að fá nánari upplýsingar um námið.
Athugið að Starfsmennt greiðir einu sinni fyrir hvern félagsmann á hvert námskeið.
Nái félagsmaður ekki að ljúka námskeiði sem Starfsmennt hefur greitt fyrir hann og hyggst endurtaka það er bent á starfsmenntasjóði stéttarfélaga.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 11.08.2021 | Reikningshald | 00:00 |