Aftur í námskeið

Microsoft Power BI

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Power BI er ný þjónusta frá Microsoft þar sem hægt er að sækja gögn frá mörgum mismunandi gagnalindum, greina þau og deila með öðrum. Á námskeiðinu er fjallað um hvað Power BI er ásamt því hvernig mælaborð eru byggð upp í Power BI Desktop.
Farið er í hvernig gögn eru tekin inn og hvernig þau eru sett fram á fjölbreyttan og stílhreinan máta. Einnig er skoðað hvernig hægt er að vinna með sameiginleg gögn og skoða þau á farsímum/spjaldtölvum.

Á námskeiðinu er fjallað um:

Uppsetningu gagna í Power BI Desktop

  • Innlestur gagna á mismunandi formi
  • Hreinsun gagna
  • Vinnu með gögn
  • Vensl og aðrar stillingar

Skýrslugerð í Power BI

  • Töflur og gröf
  • Landakort
  • Tengsl á milli grafa/korta
  • Síur

Mælaborð í Power BI

  • Samsetningu á mælaborði
  • Hvernig bæta á við mælaborð

Samvinna í Power BI

  • Hvernig deila á greiningum og mælaborðum

Power BI á farsímum/spjaldtölvum

  • Hvernig hægt er að nota Power BI greiningar á spjaldtölvum/farsímum
Efnistök

Að þekkja Power BI lausn Microsoft
Að geta greint talsvert magn gagna hratt, tengt saman aðskilin gagnamengi og sett þau fram á skiljanlegan hátt
Að geta nýtt sjálfvirkni til að flýta fyrir endurteknum verkefnum
Að kunna skýrslugerð
Að geta náð í og unnið með gögn sem annars er erfitt að sækja
Að geta notað mælaborð og greiningar á spjaldtölvum/farsímum
Að geta sett þá möguleika sem Power BI hefur upp á að bjóða í samhengi við dagleg störf og verkefni

Hæfniviðmið

Að þekkja Power BI lausn Microsoft
Að geta greint talsvert magn gagna hratt, tengt saman aðskilin gagnamengi og sett þau fram á skiljanlegan hátt
Að geta nýtt sjálfvirkni til að flýta fyrir endurteknum verkefnum
Að kunna skýrslugerð
Að geta náð í og unnið með gögn sem annars er erfitt að sækja
Að geta notað mælaborð og greiningar á spjaldtölvum/farsímum
Að geta sett þá möguleika sem Power BI hefur upp á að bjóða í samhengi við dagleg störf og verkefni

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkefni. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur og hafi sett upp Microsoft Power BI Desktop. Notast verður við ókeypis útgáfuna á námskeiðinu þannig að ekki er þörf á því að kaupa aðgang vegna þess. Nánari upplýsingar um Power BI er að finna hér Power BI.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Staðnám
Tími
  • 3. nóvember 2025 klukkan 12:30-16:30
  • 6. nóvember 2025 klukkan 12:30-16:30

Lengd
8 klst (4x2)
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja kynnast Power BI sem lausn fyrir mælaborð og skýrslugerð eins þeim sem vilja vera meira sjálfbjarga með gagnavinnslu og framsetningu. Gerð er krafa um að þátttakendur hafi unnið með gögn og gagnaframsetningu eða hafi brennandi áhuga á að byrja á því

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
03.11.2025Microsoft Power BI12:30Ásgeir Gunnarsson