Aftur í námskeið

Þema I | Upphaf starfs, starfsskyldur og starfslok

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Hér er farið yfir helstu reglur sem gilda um ráðningar starfsmanna, t.d. auglýsingaskyldu, veitingarvaldið, málsmeðferð og ákvörðun um ráðningu.

Gerð verður grein fyrir stjórnunar­rétti vinnuveitenda og starfsskyldum starfsmanna, m.a. verður fjallað um vinnuskyldu, hlýðniskyldu, þagnarskyldu, heimild til breytinga á störfum og reglur sem gilda um áminningar.

Fjallað verður um siðareglur í starfi og samfélagslega ábyrgð starfsstétta auk þess sem kynnt verður mikilvægi siðareglna innan stjórnsýslunnar. Þá verður og fjallað um ástæður starfsloka, niðurlagningu starfa við sameiningu stofnana, niðurlagningu starfa vegna samdráttar í starfssemi, biðlaun og aðilaskiptalögin.

Efnistök

Að öðlast almenna þekkingu á reglum um ráðningar starfsmanna, starfsskyldur þeirra, breytingar á störfum og áminningar.
Að þekkja stjórnunarrétt vinnuveitenda og almennar siðareglur starfa og samfélagslegt mikilvægi þeirra.
Að þekkja hvaða lögmætar ástæður geta búið að baki starfslokum starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum og kunni skil á þeim reglum sem gilda um þau.

Hæfniviðmið

Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.
Gott að vita
Markmiðið með náminu er að svara brýnni þörf fyrir fræðslu um launamál og launaafgreiðslu og tengja það við kjarasamninga og regluverk í starfsmannamálum og á þann hátt að efla sérfræðiþekkingu starfsfólks.
Umsjón
Sara Lind Guðbergsdóttir , Sara Lind Guðbergsdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Björg Valsdóttir
Námsform
Staðnám
Tími
  • 17. október 2022 klukkan 09:00-12:00
  • 19. október 2022 klukkan 09:00-12:00
  • 24. október 2022 klukkan 09:00-12:00

Lengd
9 klst (3x3)
Mat
90% mæting.
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð
49.500 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Launafulltrúar og þau sem koma að starfsmanna- og kjaramálum.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
17.10.2022Upphaf starfs, starfsskyldur og starfslok09:00Sara Lind Guðbergsdóttir