Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Að þátttakendur kynnist enn betur eigin styrkleikum og að bera kennsl á styrkleika annarra. Slík þekking nýtist vel í teymisvinnu.
Farið er vel yfir hvernig nýta má eigin styrleika betur í starfi og einkalífi og þátttakendur búa til áætlun um að blómstra í komandi verkefnum út frá eigin styrkleikum.
Þátttakendur taka styrkleikapróf og kynnast hugmyndafræði VIA Strenght prófs Dr. Martins Seligmans og Cristhophers Petterson.
Þátttakendur munu uppgötva sína eigin styrkleika, læra hvernig á að beita þeim markvisst og hvernig styrkleikamiðuð nálgun getur aukið vellíðan, sjálfstraust og árangur í daglegu lífi.
Efnistök:
Að öðlast dýpri skilning á eigin styrkleikum.
Að geta nýtt styrkleika til að leysa vandamál og ná markmiðum.
Að öðlast aukna vitund um hvernig styrkleikar geta stuðlað að betri líðan og bætt samskipti.
Að kynnast verkfærum sem nýtast teymi til að ná enn auknum árangri, bættum samskiptum og betri líðan.

Vinnustofa, tvær klukkustundir, tvö skipti í beinu streymi á Zoom. Fræðsla, umræður, verkefni. Einstaklings og hópverkefni. Opnar umræður um reynslu þátttakenda og hvernig þeir vilja nýta styrkleikana áfram.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 27.02.2025 | Eigin styrkleikar og árangur í teymisvinnu | 10:00 | Hrefna Guðmundsdóttir |