Námskeið finnst ekki

Aftur í námskeið

Word II

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu námskeiði byggir þú ofan á grunninn í Word.

Þú lærir hvað er gott að hafa í huga við vinnslu lengri skjala, hvernig þú býrð til sniðmát og mótar textasnið, helstu öryggisstillingarnar.

Þú kynnist leit og útlitsmótun, aðal- og undirskjölum, kaflaskiptum og mótun efnisyfirlits.

Þú lærir að stilla neðanmálsgreinar, setja upp atriðisorða- og myndaskrár og sjálfvirka og handvirka uppsetningu.

Hæfniviðmið

Að geta sett upp stór skjöl og skýrslur í Word
Að geta nýtt forritið til gagns í lífi og starfi

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er.

Þegar skráningu þinni hefur verið breytt úr Nýr í Samþykkt þá getur þú hafið leikinn með því að hafa samband við kennara eða fylgja leiðbeiningum  á  mínar síður undir Kennslugögn.

Nemendur geta farið í gegnum námsefnið á sínum hraða, algengt er að nemendur fari yfir efnið á 3-5 vikum.

Kennari er þér innan handar í gegnum tölvupóst, með vefspjalli eða í þjónustusíma.

Aðgengi að námsefninu er opið í 12 mánuði eftir upphafsdag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild. 

Upplýsingar og aðstoð: sími 7888805,  kennari@nemandi.is, milli 10-20 virka daga.

Samstarfsaðili
Tölvuskólinn Nemandi.
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
18 klst
Mat
Verkefnaskil
Verð
52.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námið hentar öllum sem vilja bæta kunnáttu sína og færni í Word