Aftur í námskeið

Áfallamiðuð nálgun á vinnustað

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Vilt þú geta komið fram á viðeigandi hátt við skjólstæðinga og samstarfsfólk sem hafa orðið fyrir áföllum í lífinu?
Áfallamiðuð nálgun miðar að því að skapa umhverfi og aðstæður þar sem fólki finnst það öruggt og ekki er ýtt undir áfallaviðbrögð.
Á námskeiðinu verður fjallað um hvað felst í nálgun þar sem ekki er ýtt undir áfallaviðbrögð og hvernig vinnustaðir geta innleitt slíka nálgun.

Umræðuþættir:

  • Hvað er áfallamiðuð nálgun og hvað felst í henni?
  • Hvers vegna áfallamiðuð nálgun?
  • Eðli áfalla og áhrif þeirra
  • Þroskun taugakerfis okkar
  • Mikilvægi tengsla og félagslegra samskipta
  • Hvað felst í áfallamiðaðri nálgun?
Efnistök

Að öðlast grunnþekkingu á áhrifum áfalla og samskipta á heilsu og velferð og átta sig á algengi óunninna áfalla.
Að geta skilið og tekið tillit til þess hversu yfirgripsmikil áhrif áföll geta haft á upplifun, líðan og hegðun fólks.
Að geta notað mismunandi verkfæri til að skapa umhverfi og aðstæður þar sem öll eru örugg og ekki er ýtt undir áfallaviðbrögð.

Hæfniviðmið

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Umsjón
Lilja Sif Þorsteinsdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Streymi
Tími
  • 20. febrúar 2025 klukkan 13:00-16:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Verð
19.500 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Fyrir öll sem vilja læra hvernig best sé að koma fram við skjólstæðinga og/eða samstarfsfólk sem hafa orðið fyrir áföllum í lífinu.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
20.02.2025Áfallamiðuð nálgun á vinnustað13:00Lilja Sif Þorsteinsdóttir