Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Í nútímasamfélagi er nauðsynlegt að átta sig á daglegum áreitum í lífi okkar, geta notið þeirra eða tekist á við þau þannig að lífsgæði okkar aukist. Í álagi felast oft tækifæri til vaxtar en álagstímabil má ekki verða að lífsstíl.
Þátttakendur námskeiðsins, greina áreiti í eigin lífi og átta sig á eigin viðbrögðum við álagi. Leiðir til að forgangsraða og viðhalda jafnvægi í daglegum verkefnum jafnt sem á álagstímum eru ræddar ásamt heppilegum næringarlindum og bjargráðum á álagstímabilum.
Fjallað er um jákvæða hugsun, eigin viðhorf og lífshætti án streitu.
Efnisþættir
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 27.04.2023 | Að takast á við streitu og álag. | 09:00 | Sigríður Hulda Jónsdóttir |