Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á námskeiðinu verður fjallað um hugtökin nauðung og þvingun út frá mismunandi sjónarhornum, svo sem lagalegum, sálfræðilegum, hagnýtum, hugmyndafræðilegum, félagslegum, læknisfræðilegum, siðferðilegum, sögulegum og sumir út frá eigin reynslu af nauðung og þvingun, annaðhvort sem gerendur eða þolendur. Fjallað verður helstu lög og reglur varðandi nauðung í starfi með fötluðum.
Að geta gert grein fyrir hugtakinu nauðung í starfi og í hverju það felst.
Að geta gert grein fyrir lögum og reglum varðandi nauðung í starfi með fötluðum.
Að geta afstýrt ólögmætum árásum.
Að geta beitt öruggum leiðum til að verja sig ef þörf krefur.
Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélag).
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 24.09.2024 | Nauðung í starfi með fötluðu fólki | 13:00 | Ástríður Erlendsdóttir |