Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Rekstrarumhverfi Fríhafnarinnar er flókið og hún stendur frammi fyrir miklum áskorunum sem fylgja farþegaaukningu. Hlutverk starfsmanna Fríhafnarinnar er að selja vörurnar sem þar eru á boðstólnum og þjónusta viðskiptavinina sem best verður á kosið. Viðskiptavinir geta verið kröfuharðir og mikilvægt er að mæta þeim með jákvæðu viðhorfi og uppfylla þarfir þeirra á kurteisan og yfirvegaðan hátt. Viðskiptavinir geta líka verið uppburðarlitlir og óákveðnir og þá er nauðsynlegt að nálgast þá á persónubundinn hátt og leiðbeina þeim af kostgæfni. Í þessari lotu verður meðal annars fjallað um viðhorf viðskiptavina og söluhvetjandi samskipti við þá. Í lok lotunnar er 9 klukkustunda vínskóli þar skerpt verður á þekkingu þátttakenda í vínfræðum. Frætt verður um helstu einkenni vína frá ýmsum hliðum og er þar innifalin vínsmökkun. Lotan er samtals 27 klukkustundir.
Athugið að skráningarfrestur er til 15. desember.
| Námskeið | Lengd | Umsjón |
| Fríhöfnin í stóra samhenginu | 3 klst. | Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri |
| Viðhorf og kauphegðun viðskiptavina | 3 klst. | Steinunn I. Stefánsdóttir, Starfsleikni |
| Þjónustustjórnun og sölumarkmið | 3 klst. | Steinunn I. Stefánsdóttir, Starfsleikni |
| Söluhvetjandi samskipti og samskiptatækni | 3 klst. | Steinunn I. Stefánsdóttir, Starfsleikni |
| Viðskiptafræði og áhrif markmiða | 3 klst. | Steinunn I. Stefánsdóttir, Starfsleikni |
| Algeng mistök og verðmætir kostir sölufólks | 3 klst. | Steinunn I. Stefánsdóttir, Starfsleikni |
| Vínskóli - Matur og létt vín | 3 klst. | Dominique Plédel Jónsson, Vínskólanum |
| Vínskóli - Styrkt vín | 3 klst. | Dominique Plédel Jónsson, Vínskólanum |
| Vínskóli - Sterk vín og freyðivín | 3 klst. | Dominique Plédel Jónsson, Vínskólanum |
Námskeiðin eru haldin hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum að Krossmóa 4.
Stundaskrá
Námskrá (Námskeiðslýsingar)
Námsleiðin er í samstarfi við Starfsleikni ehf og Vínskólann.
Að auka hæfni þátttakenda til að selja fjölbreyttum hópi viðskiptavina það sem hentar þeim
Að auka hæfni þátttakenda til að setja raunhæf, hvetjandi og tímasett þjónustu og sölumarkmið
Að auka hæfni þátttakenda til að skapa traust í viðskiptum
Að auka hæfni þátttakenda til að til að tileinka sér vinnubrögð sem leiða til árangurs
Að auka hæfni þátttakenda til að þekkja þrúgur, lesa og skilja upplýsingamiða á víni og þekkja einkenni helstu landa í víngerð
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 12.01.2017 | Fríhöfnin í stóra samhenginu | 09:00 | Þorgerður Þráinsdóttir |