Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Námskeið á vegum Akademías fyrir öll sem vinna með öðru fólki og langar að ná auknum árangri.
Tilfinningargreind er síðfellt að verða mikilvægari hæfni í leik og starfi þar sem samvinna og samstarf fólks skiptir sköpum. Tilfinningagreind (EQ) hefur jafnframt verið tengd við árangur í leik og starfi, vel umfram það sem hefðbundin greind (IQ) skilar. Þegar teymisvinna fer vaxandi í fyrirtækjum þá er mikilvægt að stjórnendur og allir þátttakendur hafi tilfinningagreind til þess að auka líkur á árangursríkri teymisvinnu.
Um hvað er námskeiðið?
Námskeiðið fjallar almennt um hvað tilfinningagreind er og af hverju hún er mikilvæg. Fjallað er um sjálfsþekkingu, sjálfsstjórn, hvatningu, félagsfærni og hluttekningu. Sérstaklega er fjallað um hluttekningu (e. empathy) og áhrif hennar á siðferðislegt mat, nýsköpun, hönnunarhugsun og hópvinnu.
Þú færð sendan póst tveimur virkum dögum eftir skráningu með kóða sem veitir aðgang að námskeiðinu. Þú hefur aðgang að efninu í 12 mánuði og getur horft á efnið og lært eins oft og þú kýst á meðan. Námið skiptist í sjö hluta og er um klukkustund að lengd
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Akademias og greiða fullt gjald.
Akademias
Á eigin hraða
0 klst
Þátttaka
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Fyrir öll sem vinna með öðru fólki og vilja ná árangri. Sérstaklega er mikilvægt fyrir þau sem vinna í teymum að tileinka sér tilfinningagreind til þess að geta betur tengt við annað fólk.