Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Starfsmannasamtöl eru mikilvægur vettvangur fyrir bæði starfsmenn og stjórnendur þar sem þeir hittast og ræða mikilvæg atriði sem tengjast starfinu, helstu verkefnum og samskiptum á vinnustað.
Þau eru einnig mikilvægt tæki fyrir stjórnendur til að veita endurgjöf, ræða starfsþróun, fræðsluþarfir, helstu verkefni og skipulag starfsins. Starfsmannasamtöl eiga að einkennast af gagnkvæmum samskiptum milli starfsmanns og stjórnanda þar sem aðilar leitast við að skýra óljósa þætti í starfi ásamt því að vinna að umbótum.
Í þessum fyrirlestri er farið yfir helstu atriði sem stjórnendur þurfa að hafa í huga varðandi undirbúning og framkvæmd starfsmannasamtala svo þau verði árangursrík.
Námskeiðið er opið öllum en ókeypis fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar.
Upptaka af fyrirlestrinum verður aðgengileg fyrir skráða þátttakendur til og með 25. janúar 2022.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 18.01.2022 | Starfsmannasamtöl - sjónarhorn stjórnenda - veffyrirlestur | 13:00 | Gylfi Dalmann Aðalsteinsson |