Námskeið finnst ekki

Aftur í námskeið

Tölvuleikni og Windows stýrikerfið

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu námskeiði eflir þú almenna tölvuleikni þína og kynnist Windows stýrikerfinu betur. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.

Þú leysir verkefni, lærir að skilja hlutverk myndræns notendaviðmóts og hvernig gluggar eru meðhöndlaðir. Ásamt því hvernig er best að sníða kerfið að þér og þínum þörfum.

Þú kynnist skráarvinnslu, hvernig er unnið með möppur, nafninu breytt, þeim er raðað o.s.frv. Þú vinnur með einföld forrit og býrð til skrár, vistar þær og færir milli mappa, eyðir þeim og endurheimtir þær. Þú lærir að nota stjórnborðið til að móta notendaviðmótið að þínum þörfum og kynnist ýmsum algengum hjálparforritum.

Hæfniviðmið
Að geta nýtt almenna tölvuleikni og unnið með Windows stýrikerfi.
Fyrirkomulag

Kennarinn veitir þér aðgang að rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar þú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is.

Gott að vita
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.
Samstarfsaðili
Tölvuskólinn Nemandi
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
0 klst
Mat
Verkefnaskil
Verð
39.500 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Allir sem vilja efla færni sína í almennri tölvuleikni.