Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Menntaskólinn í Kópavogi býður nú upp á nám til undirbúnings fyrir próf á vegum atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins til Viðurkennds bókara, skv. 43. grein laga nr. 145/1994 um bókhald. Kennslan fer fram í samvinnu við KPMG.
Meginviðfangsefni prófsins eru reikningshald, skattskil og upplýsingakerfi. Miðað skal við að vægi þessara efnissviða í prófinu sé í þessari sömu röð 45%, 40% og 15%.
1) Reikningshald: Tvíhliða bókhald, debet, kredit, bókhaldsreikningar, dagbók, aðalbók, undirbækur, prófjöfnuður, eignir, skuldir, eigið fé, tekjur, gjöld, afkoma, afmörkuð rekstrareining, reikningsskilatímabil, áframhaldandi rekstrarhæfi, kostnaðarverðsregla, gangvirði, innlausn tekna, jöfnunarregla, varkárnisregla, mikilvægisregla, ársreikningur, skýrsla stjórnar, skýrsla endurskoðenda, rekstrarreikningur, efnahagsreikningur, sjóðstreymi, skýringar, afstemmingar, birgðamat, afskriftir, niðurfærsla krafna, útreikningur vaxta og verðbóta, endurmat eigna, óefnislegar eignir, greining ársreikninga, kennitölur, lög um bókhald, lög og reglugerð um ársreikninga (ekki fjármálagerningar og samstæðureikningsskil).
2) Skattskil: Lög um tekjuskatt og lög og reglur um virðisaukaskatt, útfylling skattframtals einstaklinga og lögaðila, skattskyldar tekjur, A, B og C tekjur, frádráttarliðir, söluhagnaður, fyrningarreglur, tekjuskattstofn, reiknaður tekjuskattur og gjaldfærður, frestaður tekjuskattur/skattinneign, uppgjör virðisaukaskatts og vörsluskatta, samskipti við RSK, kæruleiðir til yfirskattanefndar, fyrirtækjaskrá RSK, helstu félagaform (hf., ehf., sf. og slf.) og mismunandi ábyrgð hluthafa/eigenda, reglur um arðgreiðslur/úthlutun á eigin fé..
3) Upplýsingakerfi og öryggisþætti: Upplýsingakerfi og öryggisþættir, innra eftirlit, töflureiknir (excel), stofnun skráa og vinnuskjala, afritun milli skjala, skjalasnið, uppbygging á reikniformúlum, tilvísun í reiti og önnur vinnuskjöl, innbyggð föll, s.s. textaföll, leitarföll, fjármálaföll og skilyrt föll, síur (filters) og veltitöflur (pivot) aðalbók með sumif, prófjöfnuður, uppsetning ársreiknings, lánareiknir og lánatafla, fyrningartafla afstemmingarskjal tryggingagjalds og virðisaukaskatts.
Inntökuskilyrði
Þáttakendur hafi lokið skrifstofubraut II, hafi stúdentspróf af viðskipta- og hagfræðibraut eða góða þekkingu á Excel og reynslu af bókhaldsstörfum ávinnumarkaði. Nemendur sem lokið hafa skrifstofubraut II í Menntaskólanum í Kópavogi ganga fyrir um skólavist.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 24.08.2015 | Viðurkenndur bókari | 00:00 | Menntaskólinn í Kópavogi |