Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Í þremur örþjálfunarmyndböndum sýnir Örn Árnason leikari á skemmtilegan hátt hvernig líkamstjáning og raddbeitingin hafa áhrif á hvort samskipti þín séu árangursrík.
Myndböndin þrjú eru eftirfarandi:
Góð samskipti byrja hjá okkur sjálfum.
Breytir raddbeiting merkingu orða?
Hlusta með augunum.
Námskeiðið nýtist jafnt í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsfólk hvort sem það er á netinu eða augliti til auglitis. Námskeiðinu fylgja verkefni með það að markmiði að bæta eigin samskiptatækni.
Að skilja mikilvægi líkamstjáningar og raddbeitingar í árangursríkum samskiptum
Að átta sig á mikilvægi samskiptatækni í virkri hlustun
Að vita að jafnvel lítil atriði í samskiptatækni þinni geta haft mikil áhrif á upplifun annarra
Að styrkja öryggi í samskiptum og fagmennsku
Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum og verkefnum.
Námskeiðið er opið í fjórar vikur.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða