Aftur í námskeið

Hugarkort - Mind Mapping - Vefnám

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Hugarkort eru öflugt verkfæri sem hægt er að nota til að auka færni í starfi og námi. Þau gefa nýja leið til að greina og meta einföld sem flókin viðfangsefni bæði til að þróa nýjar hugmyndir, festa efni betur í minni og auka skilning á viðfangsefninu.

Með hugarkortum er hægt að skipuleggja hugsun og þekkingu á hagnýtan, skemmtilegan og árangursríkan hátt.Hugarkort eru einnig mikið notuð sem glósutækni og í dag er gerð þeirra kennd við marga háskóla til stuðnings við lærdóm og sköpun.

Á námskeiðinu er kennd aðferðafræði hugarkorta og nýting þeirra með notkun á (ókeypis) hugbúnaði.

Námsþættir:

  • Gerð hugarkorta, hagnýt verkefni.
  • Xmind -Notendavænn hugbúnaður fyrir hugarkortagerð.
Efnistök

Að efla færni í notkun hugarkorta.
Að auka þekkingu á möguleikum hugarkorta.

Hæfniviðmið

Að efla færni í notkun hugarkorta.
Að auka þekkingu á möguleikum hugarkorta.

Fyrirkomulag

Á fyrsta degi leiðir kennari nemendur inn í rafrænt netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Kennari er nemendum innan handar með tölvupósti, vefspjalli og í þjónustusíma. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu.  

Nánari upplýsingar varðandi námið veitir kennari námskeiðsins í síma 788 8805 frá kl. 10-20 á virkum dögum eða í netfangið kennari(hjá)nemandi.is.

Gott að vita
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.
Samstarfsaðili
Tölvuskólinn Nemandi
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce - soffia(hjá)smennt.is
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
0 klst
Mat
Verkefnaskil
Verð
39.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námið hentar öllum sem vilja læra að nýta hugarkort í leik og starfi.