Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á þessu námskeiði lærir þú grunninn í Photoshop. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.
Þú leysir fjölbreytt verkefni þar sem þú lærir á grunnverkfæri myndvinnslu í Photoshop Elements. Þú lærir að hreinsa burt bletti og bólur af andlitsmyndum, færa eða fjarlægja fólk eða hluti af mynd, lagfæringar og litajöfnun, hvernig á að nota síur og lög ásamt því að breyta bakgrunninum. Þá lærir þú hvernig myndvinnsla er best fyrir mismunandi miðla.
Kennarinn veitir þér aðgang að rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar þú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða