Aftur í námskeið

Inngildandi vinnustaðamenning - fatlað fólk á vinnumarkaði

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Í fræðsluerindinu er leitast við að undirbúa starfsstaði til þess að taka á móti fötluðum einstaklingum til starfa og stuðla þannig að inngildandi vinnumarkaði þar sem þátttaka allra er metin að verðleikum og tækifærin gefin.
Sérstaklega er fjallað um eftirfarandi þætti; hvað felst í viðeigandi aðlögun, hvaða þýðingu hún hefur bæði fyrir fatlaða einstaklinga, samstarfsfólk og vinnustaðamenningu.

Með samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks hafa tækifæri þeirra og fólks með skerta starfsgetu aukist á vinnumarkaði. Viðeigandi aðlögun er þó algjör forsenda þess að fatlað fólk og/eða fólk með skerta starfsgetu eigi raunhæfan möguleika á að njóta jafnréttis og jafnra tækifæra.

Í ráðningu fatlaðs fólks en í lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði nr86/2019 er kveðið á um viðeigandi aðlögun en í 10. gr laganna segir:

Atvinnurekandi skal gera viðeigandi ráðstafanir, sé þeirra þörf í sérstöku tilviki, til að gera fötluðum einstaklingi eða einstaklingi með skerta starfsgetu kleift að eiga aðgengi að og taka þátt í starfi, njóta framgangs í starfi eða fá þjálfun, enda séu þær ráðstafanir ekki of íþyngjandi fyrir atvinnurekandann.


Hæfniviðmið

Að auka skilning á því hvað viðeigandi aðlögun þýðir fyrir samstarfsfólk
Að auka þekkingu á því hvernig viðeigandi aðlögun er beitt á vinnustað
Að þekkja til þeirra laga sem viðeigandi aðlögun á vinnustað byggir á
Að auka færni til þess að vinna á fjölbreyttum vinnustað
Að stuðla að inngildandi vinnustaðamenningu

Fyrirkomulag

Fræðsluerindi, fyrirspurnir og umræður

Tengiliðir námskeiðs
  • Guðrún Arna Gylfadóttir
Námsform
Streymi
Tími
  • 6. nóvember 2024 klukkan 14:00-15:00

Lengd
1 klst
Mat
Þátttaka
Verð
Markhópur
Öll sem vilja auka færni sína til þess að vinna á fjölbreyttum vinnustað og stuðla að inngildandi vinnustaðamenningu.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
06.11.2024Inngildandi vinnustaðamenning14:00Sara Dögg Svanhildardóttir