Aftur í námskeið

Trúnaðarmenn Sameykis | Geðheilbrigði á vinnustað og uppskriftin að góðri geðheilsu

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Fyrirlestrinum er ætlað að vekja viðstödd til vitundar um mikilvægi þess að huga að geðheilbrigði á vinnustað, starfsfólks alls og okkar sjálfra. Farið er yfir helstu áskoranir sem starfsfólk vinnustaða stendur frammi fyrir þegar kemur að eigin geðheilbrigði og samstarfsfólks. Borin eru kennsl á helstu atriði í stjórnun og vinnufyrirkomulagi sem líkleg eru til að draga úr eða efla geðheilsu starfsfólks og um ábyrgð fyrirtækja, stjórnenda og okkar sjálfra í að hlúa að geðheilbrigði á vinnustað. Að síðustu er markmiðið að fræða viðstödd og vekja til umhugsunar um mikilvægi þess að hlúa að eigin geðheilsu um leið og kenndar eru hagnýtar og árangursríkar leiðir til sjálfsumönnunar

Efnistök

Að átta sig á mikilvægi þess að setja geðheilbrigði á vinnustað í forgang
Að þekkja helstu áskoranir sem starfsfólk og stjórnendur standa frammi fyrir í tengslum við geðheilbrigði á vinnustað
Að þekkja helstu orsakir, afleiðingar og merki um neikvæða geðheilsu og streitu á vinnustað
Að átta sig á hver einkenni algengra geðvandamála eru
Að þekkja til gagnlegra og viðurkenndra aðferða til að hlúa að eigin geðheilsu og bæta líðan á vinnustað (HAM)
Að hafa sína eigin uppskrift að góðri geðheilsu

Hæfniviðmið

Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður
Gott að vita

Námskeiðið er bæði í staðnámi og í streymi. Í skráningarferlinu er hægt að velja hvort þið viljið mæta á staðinn eða taka námskeiðið á Teams.

Umsjón
Helena Skaptason Jónsdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Jóhanna Þórdórsdóttir hjá Sameyki og Sólborg Alda Pétursdóttir hjá Starfsmennt
Námsform
Staðnám
Tími
  • 21. október 2024 klukkan 11:00-12:00

Lengd
1 klst
Mat
Mæting
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Trúnaðarmenn Sameykis

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
21.10.2024Geðheilbrigði á vinnustað og uppskriftin að góðri geðheilsu11:00Helena Jónsdóttir