Við verðum á Mannauðsdeginum í Hörpu föstudaginn 2. október. Skrifstofan verður því lokuð þann dag.
Aftur í námskeið

Að leiða teymi

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Stafrænt námskeið sem hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref sem stjórnendur en einnig fyrir þá sem vilja efla sig enn frekar í stjórnendahlutverkinu.

Á námskeiðinu verður farið í það

  • hvernig þátttakendur geti mátað sig inn í mismunandi hlutverk stjórnandans
  • hvernig hægt sé að móta og leiða teymi
  • hvernig eigi að greina sinn eigin leiðtogastíl
  • hvernig hvatning hefur áhrif á árangur og starfsánægju
  • hvernig velja eigi leið til að meta árangur teymis og einstaklinga og veita endurgjöf.
Efnistök

Að auka færni fyrir fólk sem leiðir eða vill leiða teymi.

Hæfniviðmið

Að auka færni fyrir fólk sem leiðir eða vill leiða teymi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er vefnám á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim stað og tíma sem hentar.

Eftir skráningu hjá Starfsmennt þarf að bíða eftir næsta virka degi, þá kemur póstur frá Opna Háskólanum í HR sem veitir aðgang að námssvæði námskeiðisins (kennslukerfi Opna háskólans).

Gott að vita

Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Opna Háskólanum í HR.

Samstarfsaðili

Opni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík

Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform

Á eigin hraða

Lengd

1 klst

Mat

Áhorf

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Námskeiðið hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref sem stjórnendur en einnig fyrir þau sem vilja efla sig enn frekar í stjórnendahlutverkinu.