Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Vilt þú byggja upp öflugt og árangursríkt teymi?
Rannsóknir sýna að áhrif umhverfis eru mikil og styðja við að teymi séu framúrskarandi. Stjórnendur sem byggja upp starfsumhverfi þar sem markmiðin eru skýr og sálrænt öryggi ríkir, sjá meiri árangur.
Á þessu námskeiði fá þátttakendur innsýn inn í mikilvægi starfsumhverfisins og áhrif þess á liðsheild og samvinnu. Fjallað verður um þá þætti sem eru nauðsynlegir til þess að byggja upp umhverfi sálræns öryggis og jákvæðrar menningar.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Að geta gert grein fyrir mikilvægi liðsheildar
Að geta nýtt þekkingu og færni til þess að byggja upp öflugt teymisumhverfi
Að geta notað góða leiðtogafærni og hæfni til að efla teymið þitt
Að geta gert grein fyrir mikilvægi liðsheildar
Að geta nýtt þekkingu og færni til þess að byggja upp öflugt teymisumhverfi
Að geta notað góða leiðtogafærni og hæfni til að efla teymið þitt
Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur munu taka virkan þátt í námskeiðinu. Kennsluaðferðir eru meðal annars fyrirlestur, æfingar, dæmi og umræður.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 04.03.2026 | Framúrskarandi teymi | 13:00 | Íris Sigtryggsdóttir |