Námskeið finnst ekki

Aftur í námskeið

Mindmap, hugarkort

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu námskeiði lærir þú aðferðafræði hugarkorta, hvernig er best að setja þau upp og hvernig þú getur nýtt gervigreindina til þess.

Hugarkort eru öflugt verkfæri sem hægt er að nota til að auka færni í starfi og námi. Þau gefa nýja leið til að greina og meta einföld sem flókin viðfangsefni bæði til að þróa nýjar hugmyndir, festa efni betur í minni og auka skilning á viðfangsefninu.

Með hugarkortum er hægt að skipuleggja hugsun og þekkingu á hagnýtan, skemmtilegan og árangursríkan hátt. Hugarkort eru einnig mikið notuð sem glósutækni og í dag er gerð þeirra kennd við marga háskóla til stuðnings við lærdóm og sköpun.

Þú lærir að gera hugarkort og leysir hagnýt verkefni. Þú kynnist forritinu XMind sem er frír hugbúnaður fyrir hugarkortagerð.

Hæfniviðmið

Að geta nýtt sér aðferðafræði hugarkorta í námi og starfi
Að nýta gervigreind við gerð hugarkorta

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er.

Þegar skráningu þinni hefur verið breytt úr Nýr í Samþykkt þá getur þú hafið leikinn með því að hafa samband við kennara eða fylgja leiðbeiningum  á  mínar síður undir Kennslugögn.

Nemendur geta farið í gegnum námsefnið á sínum hraða, algengt er að nemendur fari yfir efnið á 3-5 vikum.

Kennari er þér innan handar í gegnum tölvupóst, með vefspjalli eða í þjónustusíma.

Aðgengi að námsefninu er opið í 12 mánuði eftir upphafsdag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild. 

Upplýsingar og aðstoð: sími 7888805,  kennari@nemandi.is, milli 10-20 virka daga.

Samstarfsaðili
Tölvuskólinn Nemandi
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
18 klst
Mat
Verkefnaskil
Verð
52.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námið hentar öllum sem vilja læra að nýta hugarkort í leik og starfi