Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Góð og uppbyggjandi vinnustaðamenning er grunnur að vellíðan í starfi. Jákvæð vinnustaðamenning getur haft mikil áhrif á starfsánægju, helgun sem leiðir til betri frammistöðu fyrirtækja og stofnana. Jákvæð menning á vinnustað spilar stærstan þátt í því að halda í gott starfsfólk.
Á þessu námskeiði verður fjallað um mikilvægi uppbyggjandi vinnustaðamenningar og leitast við að skapa meðvitund um það hvernig hvert og eitt getur haft áhrif á þróun hennar.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Að þekkja og vera meðvituð um mikilvægi vinnustaðamenningar
Að bæta frammistöðu fyrirtækis/stofnunar
Að auka starfsánægju
Að bæta stjórnun
Að þekkja og vera meðvituð um mikilvægi vinnustaðamenningar
Að bæta frammistöðu fyrirtækis/stofnunar
Að auka starfsánægju
Að bæta stjórnun
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 18.11.2025 | Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli! | 09:00 | Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir |