Aftur í námskeið

Forystufræðsla - Hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna stéttarfélaga-í fjarfundi

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Ath: Námskeiðið er einungis í boði í fjarfundi (fjarkennsla).

Námskeiðið er tvö skipti, 3 klst. hvort skipti, þriðjudagur 3. nóvember og fimmtudagur 5. nóvember. kl. 9:00 - 12:00 bæði skiptin.
Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað almennt um hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna stéttarfélaga og veita leiðbeiningar um hvernig best verði staðið að framkvæmd stjórnarstarfa m.t.t. skilvirkni og gagns fyrir stéttarfélögin. Tekin verða fyrir atriði er varða árangursríkt stjórnarsamstarf, ákvarðanatöku, fundarboðun, fundarstjórn, starfsreglur, vanhæfi, siðferði og upplýsingaflæði til stjórnar.

Seinni hluti námskeiðsins fjallar um hversu mikilvægt er að sinna fjárreiðum stéttarfélaga af ábyrgð og fagmennsku. Lögð verður áhersla á ábyrgð stjórna og mikilvægi þess að festa góð vinnubrögð í sessi, s.s. formlegar bókanir um fjármál í fundargerðum. Þátttakendur fá leiðbeiningar um fjárhagsáætlanir, uppsetningu og lestur ársreikninga, efnahagsreikninga, umsýslu sjóða, samþykkt reikninga, ábyrgð og innri endurskoðun, kynningar á reikningum fyrir félagsmenn og innsýn í reglugerðir sem varða þessi mál.


Verð kr.26.000. Stéttarfélögin greiða námskeiðsgjöldin fyrir félagsmenn sína.

Efnistök

Að efla færni þátttakenda til stjórnarsetu í stéttarfélögum.
Að efla færni þátttakenda við umsjón á fjárreiðum innan stéttarfélaga.
Að þátttakendur öðlist skilning á ábyrgð sinni á fjárreiðum innan stéttarfélaga.

Hæfniviðmið

Að efla færni þátttakenda til stjórnarsetu í stéttarfélögum.
Að efla færni þátttakenda við umsjón á fjárreiðum innan stéttarfélaga.
Að þátttakendur öðlist skilning á ábyrgð sinni á fjárreiðum innan stéttarfélaga.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og verkefni.

Gott að vita

Námskeiðið er ætlað formönnum, stjórnarmeðlimum og starfsfólki stéttarfélaga.

Námskeiðið er haldið í fjarfundi

Samstarfsaðili

ASÍ,
BSRB,
Félagsmálaskóli Alþýðu.

Umsjón

Bjarni Frímann Karlsson , Sömu kennarar

Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Pétursdóttir - solborg(hjá) smennt.is
Námsform

Á eigin hraða

Lengd

7 klst (4+3)

Mat

Mæting

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Námskeiðið er ætlað formönnum, stjórnarmeðlimum og starfsfólki stéttarfélaga.