Aftur í námskeið

Virkjaðu skapandi hugsun

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Hvernig getum við virkjað skapandi hugsun í lífi og starfi?

Í síbreytilegu umhverfi nútímans er mikilvægt að geta notað skapandi hugsun til þess að efla nýsköpun og aðlagast nýjum aðstæðum. Þegar við nálgumst tæknina með opnum huga og forvitni verða til fleiri hugmyndir, betri spurningar og skýrari lausnir sem getur sparað tíma og aukið gæði vinnunnar.

Á þessu námskeiði kynnist þú ýmsum aðferðum sem styðjast við vísindalegar rannsóknir með það að markmiði að efla eigin sköpunarkraft og auka velgengni.

Þú lærir að virkja sköpunarkraftinn og nýta hann á markvissan hátt í starfi og daglegu lífi. Jafnframt er fjallað um hvernig skapandi hugsun getur stutt við árangursríka notkun gervigreindar..

Efnistök
  • Gagnreyndar aðferðir úr smiðju jákvæðrar sálfræði
  • Áhrifaríkar leiðir til þess að draga úr álagi og minnka streitu
  • Hugtakið skapandi hugsun og hvernig má efla hana
  • Leiðir til að yfirstíga hindranir og virkja skapandi hugsun
  • Hagnýtar aðferðir til að örva hugmyndaflug og nýja nálgun
  • Leiðir til að nýta eigin styrkleika og auka frumkvæði og árangur
  • Tengsl skapandi hugsunar og notkun gervigreindar í starfi 
Hæfniviðmið

Að auka hæfni til að hugsa út fyrir rammann og takast á við verkefni með opnum huga
Að efla sjálfstraust til að geta þróað eigin hugmyndir í starfi
Að auka skilning á því hvernig skapandi hugsun og gervigreind geta unnið saman

Fyrirkomulag

Vinnustofa, fyrirlestur, umræður og hópaverkefni

Umsjón
Steinunn Ragnarsdóttir stjórnunarráðgjafi og leiðbeinandi
Námsform
Staðnám
Tími
  • 14. apríl 2026 klukkan 13:00-15:00

Lengd
2 klst
Mat
Mæting, þátttaka
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð
15.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem hafa áhuga á að kynnast gagnreyndum leiðum til þess að virkja skapandi hugsun og sköpunarkraft til þess að efla árangur og skapa nýja möguleika

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
14.04.2026Virkjaðu skapandi hugsun13:00Steinunn Ragnarsdóttir