Aftur í námskeið

Listin að hakka fólk - ertu að láta plata þig?

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Bragðvísi (e. social engineering) hefur risið upp sem ein stærsta öryggis ógnin fyrir bæði einstaklinga og stofnanir. Bragðvísi snýst um hvernig hægt er að beita sálfræðilegum aðferðum til þess að plata fólk og ná aðgangi að jafnvel viðkvæmustu gögnum þeirra og vinnustaðarins. Í þessu erindi verður farið yfir þær sálfræðilegu aðferðir sem hakkarar beita til að ná þessu fram, raunveruleg dæmi og þær aðferðir sem við getum notað til að draga úr líkum að við verðum fórnarlamb í slíkum árásum.

Hörn er með BSc gráðu í sálfræði og MSc gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Í störfum hennar hjá Syndis og núna Defend Iceland hefur hún borið ýmsa hatta og meðal annars verið „hakkari“ þar sem hún notar þekkingu sína úr sálfræði til að framkvæma bragðvísis árásir (e. social engineering).

Efnistök
Að þekkja þær sálfræðilegu aðferðir sem hakkarar beita til að plata fólk
Hæfniviðmið
Að þekkja þær sálfræðilegu aðferðir sem hakkarar beita til að plata fólk
Fyrirkomulag

Fyrirlestur og spurt og svarað í lokin

Umsjón
Hörn Valdimarsdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Pétursdóttir
Námsform
Streymi
Tími
  • 19. mars 2025 klukkan 09:00-10:00

Lengd
1 klst
Mat
Mæting
Verð
6.500 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem vilja þekkja og varast aðferðir hakkara

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
19.03.2025Listin að hakka fólk - Ertu að láta plata þig?09:00Hörn Valdimarsdóttir