Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Hvernig er hægt að stuðla að vellíðan fólks á vinnustað og auðvelda einstaklingum að ná árangri?
Á þessu námskeiði verður fjallað um líðan, heilsu og öryggi starfsfólks út frá fræðum gæðastjórnunar og vinnuverndar.
Fjallað verður um félagslega og sálræna þætti sem og vinnuaðstöðu. Einnig hvernig hæfni einstaklinga er metin og hvernig henni er viðhaldið.
Viðhorf starfsfólks til sinna daglegu starfa og umhverfis síns leggur grunn að góðri starfsemi skipulagsheilda. Göngum glöð til starfa alla daga!
Á námskeiðinu er fjallað um:
Að auka starfsgleði og jákvæð viðhorf á vinnustaðnum
Að öðlast hugmyndir og færni til að efla vinnustaðinn
Að öðlast innsýn inn í vinnuverndarhugsun og sjónarhorn gæðastjórnunar
Fyrirlestur
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 17.03.2026 | Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks | 09:00 | Guðrún Ólafsdóttir |