Aftur í námskeið

Fagnám í umönnun fatlaðra - Framvegis

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Markmið námsins er að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fatlaðs fólks með því að veita þeim viðeigandi þjónustu.

Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra en í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum fyrir fatlaða. Það getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þau sem vinna með börnum og unglingum í vanda. Breyttar áherslur í starfi kalla á aukna fagmennsku og markvissa starfsþróun þannig að starfsfólk geti veitt framsækna og metnaðarfulla þjónustu.

Námið spannar 324 klukkustundir. 164 stundir með leiðbeinanda og 160 stundir án leiðbeinanda (starfsreynsla/þjálfun). Mögulegt er að meta námið til 16 eininga á framhaldsskólastigi.

Efnistök

að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni.

Hæfniviðmið

að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni.

Fyrirkomulag

Námið er kennt tvo daga í viku eftir hádegi. Þrír verkefnadagar verða á meðan náminu stendur, verða þeir auglýstir síðar.

Gott að vita

Námskeiðið er aðeins fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar, öðrum er bent á að skrá sig hjá Framvegis.

Samstarfsaðili

Framvegis

Tengiliðir námskeiðs
  • Björg Valsdóttir
Námsform

Á eigin hraða

Lengd

0 klst

Mat

Verkefnaskil og mæting í fjarkennslu á rauntíma.

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Þau sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra en í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum fyrir fatlaða. Það getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þau sem vinna með börnum og unglingum í vanda.