Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á þessu námskeiði lærir þú að útbúa vönduð og eftirtektarverð gögn í Powerpoint s.s. glærur, námsgögn og skjásýningar. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.
Þú kynnist sniðskjölum og hvernig er best að nota sniðmát, gera textabreytingar, stilla litasamsetningar og myndefni. Þú lærir á lista, töflur, mynd- og skipurit, hvernig á að stilla haus og fótlínur og setja upp minnispunkta. Þú lærir að raða glærum, setja upp útlínur, nota hreyfimyndir, hljóðsetningu og hvernig á að setja upp sjálfvirka spilun.
Þetta námskeið hentar öllum sem vilja flytja mál sitt á skýran og skilmerkilegan máta og koma efni á framfæri á lifandi og eftirtektarverðan hátt.
Að auka öryggi í gerð glæsusýninga og kynninga.
Að efla færni í framsetningu efnis í PowerPoint.
Að auka öryggi í gerð glæsusýninga og kynninga.
Að efla færni í framsetningu efnis í PowerPoint.
Kennarinn veitir þér aðgang a rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar nú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiði stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki. Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það. Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en Landhelgisgæslan greiði fyrir aðra.
Tölvuskólinn Nemandi
Bjartmar Þór Hulduson
Staðnám
0 klst
Verkefnaskil
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Starfsfólk Landhelgisgæslunnar
Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
31.05.2023 | Margmiðlun og kynningar í Powerpoint | 23:59 | Bjartmar Þór Hulduson |