Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Rétt meðferð matvæla er mikilvæg til að tryggja öryggi og heilsu neytenda.
Á þessu námskeiði, sem byggir á HACCP kerfinu (hét áður GÁMES og stendur fyrir „Hazard Analysis Critical Control Point“), verður fjallað um fyrirbyggjandi aðgerðir eins og þrif og þrifaáætlanir, persónulegt hreinlæti, vörumóttöku, meðferð hráefnis, geymslu og geymsluþol matvæla, kjarnhita, örverur og vöxt þeirra í matvælum, krossmengun og fleira.
Helstu efnistök násmkeiðsins eru:
Hættur við matvælaframleiðslu
Meðferð matvæla og geymsla
Skipulag og ábyrgðarskipting
Fyrirlestur. Hægt að skrá sig á staðnámskeið eða fjarnámskeið (í beinu streymi) með því að haka við "Ég vil skrá mig í fjarnám" í skráningarferlinu.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Iðan Fræðslusetri.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 13.02.2025 | „HACCP“ - hreinlæti og örugg meðferð matvæla | 14:00 | Elísabet Katrín Friðriksdóttir |