Námskeið finnst ekki

Aftur í námskeið

Excel II

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu námskeiði byggir þú ofan á grunninn í Excel I og hvernig þú getur nýtt gervigreindina Copilot.

Á þessu námskeiði lærir þú að nota flóknari gagnavinnsluföll (e. functions), síur og gagnaprufun.

Þú kynnist mikilvægustu gagnavinnsluföllunum, snúningstöflum (e. Pivot), lærir á uppflettiföll, leitar- og rökfræðiföll.

Þú lærir að sækja gögn í gagnavinnslukerfi og hvernig á að raða þeim og sía (e. Data Validation) ásamt því að læra á tengingar milli skjala og innan vinnubókar, verndun og læsingu gagna, fjölvavinnslu (Macros) og gerð þeirra og fjármálaföll.

Hæfniviðmið

Að geta notfært sér margskonar gagnavinnsluföll
Að geta notað gagnavinnslukerfi á nytsamlegan hátt

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Samstarfsaðili
Tölvuskólinn Nemandi.
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
18 klst
Mat
Verkefnaskil
Verð
52.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námið hentar öllum sem hafa lokið Excel I eða hafa haldbæra reynslu af Excel og vilja bæta kunnáttu sína og færni