Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Fjallað er um hvernig á að veita afbragðsþjónustu í gegnum síma. Kennd eru ýmis gagnleg ráð til að hafa samtöl faglegri og um leið hnitmiðaðri. Farið er yfir tækni sem má nota í samskiptum við erfiða einstaklinga í síma.
Þátttakendur fá rafbókina 20 góð ráð í þjónustusímsvörun og gátlista yfir lykilþætti í þjónustusímsvörun. Nánari upplýsingar um bókina má sjá á www.gerumbetur.is.
Að geta stýrt samtölum og stytt þau.
Að þekkja algeng mistök í þjónustusímsvörun.
Að læra ýmis ráð í samskiptum við erfiða einstaklinga.
Að efla öryggi í samskiptum og fagmennsku.
Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum og verkefnum.
Námskeiðið er opið í fjórar vikur og fjórum vikum eftir námskeiðslok fá þátttakendur sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í þjónustusímsvörun.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða