Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Gervigreind hefur gjörbreytt myndvinnslu og opnað nýjar víddir fyrir alla, óháð fyrri reynslu. Á þessu námskeiði lærir þú að nýta krafta gervigreindar til að búa til og breyta myndum á áhrifaríkan hátt.
Á námskeiðinu verða kynnt leiðandi gervigreindar-myndvinnsluverkfæri sem eru bæði notendavæn og bjóða frían aðgang. Þú lærir að nota þessi verkfæri til að búa til myndefni út frá einföldum textalýsingum, breyta eldri myndum og jafnvel búa til hreyfimyndir út frá myndum. Farið verður í hvernig þú breytir stílum, sameinar myndir, fjarlægir bakgrunn, býrð til listaverk frá grunni og margt fleira.
Þú lærir að skrifa áhrifaríkar kvaðningar (prompts) til að fá bestu útkomu og færð hagnýta þjálfun í nýjustu tækni í myndvinnslu sem nýtist í starfi og leik.
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er.
Þegar skráningu þinni hefur verið breytt úr Nýr í Samþykkt þá getur þú hafið leikinn með því að hafa samband við kennara eða fylgja leiðbeiningum á mínar síður undir Kennslugögn.
Nemendur geta farið í gegnum námsefnið á sínum hraða, algengt er að nemendur fari yfir efnið á 3-5 vikum.
Kennari er þér innan handar í gegnum tölvupóst, með vefspjalli eða í þjónustusíma.
Aðgengi að námsefninu er opið í 12 mánuði eftir upphafsdag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild.
Upplýsingar og aðstoð: sími 7888805, kennari@nemandi.is, milli 10-20 virka daga.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða