Aftur í námskeið

Topp símaþjónusta og samskiptafærni

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Aukin fagmennska í þjónustu og samskiptum í síma

 Á þessu námskeiði er fjallað er um hvernig er hægt með aukinni fagmennsku að auka gæði þjónustu í samskiptum í síma og gera þau um leið hnitmiðaðri.

Kennd eru ýmis gagnleg ráð til að byggja upp traust í símtölum, stýra erfiðum aðstæðum af öryggi og skila betri upplifun viðskiptavina, í hverju einasta símtali.

Með námskeiðinu fylgir bókin Topp símaþjónusta sem er hagnýt og aðgengileg bók með dæmum, ráðum og verkfærum sem efla menningarnæm samskipti.


Efnistök

Að geta stýrt samtölum og stytt þau með markvissum hætti
Að kunna að forðast algeng mistök í þjónustusímsvörun
Að geta stýrt erfiðum aðstæðum í síma á lausnamiðaðan hátt með jákvæðni og öryggi

Hæfniviðmið

Að geta stýrt samtölum og stytt þau með markvissum hætti
Að kunna að forðast algeng mistök í þjónustusímsvörun
Að geta stýrt erfiðum aðstæðum í síma á lausnamiðaðan hátt með jákvæðni og öryggi

Fyrirkomulag

Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum og verkefnum. 

Námskeiðið er opið í fjórar vikur og fjórum vikum eftir námskeiðslok fá þátttakendur sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í þjónustusímsvörun.

Samstarfsaðili
Gerum betur
Umsjón
Margrét Reynisdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
10 klst
Mat
Skila verkefnum 4 vikum eftir að námskeið hefst.
Verð
24.500 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem sinna símaþjónustu og vilja efla samskiptahæfni sína og auka gæði þjónustu.