Aftur í námskeið

Almennt tölvunám

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu námskeiði lærirðu grunnhandtökin í tölvunotkun

Þú lærir um Windows stýrikerfið, viðmót þess og virkni. Þú vinnur með möppur, skrár og skipulag og færð leiðbeiningar um hvernig er best að stilla viðmót tölvunnar fyrir þig.

Þú lærir hvernig er hægt að nota Word til þess að leysa fjölbreytt verkefni, helstu skipanir í forritinu og verkfæri. Þú lærir grunnatriði í útlitismótun og uppsetning texta og kynnist prentun. Þú vinnur með myndefni og aðlagar það að texta, vinnur með töflur, inndrátt og sniðmát (e. templates).

Þú kynnist grunnverkfærum Excel og notendaviðmótum þess. Ferð yfir grunninn í uppsetningu formúla, t.d. summu, frádrátt, margföldun og deilingu. Þú lærir að stilla vísanir í reiti og skjöl ásamt útlitsmótun gagna. Þú lærir að móta texta, töflur og myndrit í Excel, uppsetningu á haus og fæti og hvernig er best að prenta skjöl.

Þú kynnist grundvallarhugtökum í upplýsingatækni og tölvunotkun. Fræðist um upplýsingasamfélagið og hverju þú þarft að huga að áður en þú kaupir tölvu, hvernig þú verndar gögnin þín og hvaða vinnustellingar eru bestar við tölvu.

Hæfniviðmið

Að efla tölvufærni.
Að þekkja helstu tölvuforrit, eins og Word og Excel.
Að efla skilning og þekkingu á internetinu, tölvupósti og upplýsingatækni.

Fyrirkomulag

Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Námskeiðið stendur yfir í 10 vikur en stuðningur er veittur að því loknu.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 778 8805 milli kl. 10 – 11 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Gott að vita
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.
Samstarfsaðili
Tölvuskólinn Nemandi
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
0 klst
Mat
Verkefnaskil
Verð
79.500 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Námskeiðið hentar öllum sem hafa litla reynslu en vilja efla þekkingu sína á rafrænu umhverfi.