Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á námskeiðinu verður fjallað um opinber innkaup, einkum útboð, sem leið til að koma á samningi milli opinberra aðila og fyrirtækja. Um er að ræða inngangsnámskeið þar sem helstu grundvallaratriðum verður gerð góð skil. Fjallað verður um helstu lög og stefnur, meginreglur laga um opinber innkaup, gildissvið laganna og hvernig eigi að leggja mat á hvort innkaup séu útboðsskyld. Þá verður farið yfir hvaða kröfur megi gera í útboðsgögnum og hvernig eigi að leggja mat á framlögð tilboð, einkum hvenær tilboð teljist gild og hvenær megi kalla eftir viðbótarupplýsingum.Helstu efnisþættir námskeiðisins Markmið opinberra innkaupa, helstu lög og stefnur Meginreglur laga um opinber innkaup Gildissvið laga um opinber innkaup og hvenær stofnast til útboðsskyldu Tæknilýsingar, hæfiskröfur, valforsendur og samningskröfur Mat og val tilboða Innkaupaskólinn er námsleið fyrir þau sem koma að opinberum innkaupum hjá ríki, sveitarfélögum og frjálsum félagasamtökum svo sem forstöðumenn, ábyrgðarmenn innkaupa, fjármála- og rekstarstjóra. Námsleiðin er unnin í samstarfi við Fjársýslu ríkisins í gegnum samstarfsvettvang Starfsmenntar.
Að þekkja helstu markmið og sjónarmið sem gilda um opinber innkaup.
Að vita hvenær bjóða þurfi út innkaup.
Að þekkja helstu kröfur sem má gera í útboðum.
Að þekkja hvernig eigi að meta framlögð tilboð.
Að þekkja helstu markmið og sjónarmið sem gilda um opinber innkaup.
Að vita hvenær bjóða þurfi út innkaup.
Að þekkja helstu kröfur sem má gera í útboðum.
Að þekkja hvernig eigi að meta framlögð tilboð.
Veffyrirlestrar og umræðutími. Upptökur af veffyrirlestrum verða aðgengilegar um viku fyrir umræðutíma og er ætlast til að þátttakendur verði búnir að tileinka sér námsefnið áður en umræður fara fram. Þátttakendur fá tækifæri til að senda inn fyrirspurnir um efni námskeiðsins fyrir umræðutímann.
Upptökur af fyrirlestrum verða aðgengilegar þátttakendum í viku eftir umræðutímann.
Fjársýsla ríkisins
Stanley Örn Axelsson , Stanley Örn Axelsson
Á eigin hraða
5 klst (3+2)
Mæting
39.000 kr
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Þau sem koma að opinberum innkaupum hjá ríki, sveitarfélögum og frjálsum félagasamtökum.