Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Mörgum finnst það óþægileg staða að þurfa að stjórna jafningjum eða sérfræðingum, sérstaklega þeim sem stýra t.d. hópum en hafa ekki mannaforráð.
Fyrirmyndarhlutverkið í jafningjastjórnun er lykilatriði ásamt því að vera gegnheill og traustur. Sá sem stýrir jafningjum verður að sýna þá hegðun sem hann ætlar öðrum. Stjórnandi hópsins verður að ávinna sér virðingu hópsins því á því hvílir hans árangur. Hjá öllum stjórnendum jafningja takast á nokkur þekkt málefni eins og það að segja öðrum fyrir verkum, að ræða frammistöðu og framgang verkefna, að taka á viðkvæmum málum og segja og gera það sem þarf að gera og segja. Á námskeiðinu verður farið yfir þau atriði sem stjórnendur jafningja upplifa sem erfið og óþægileg. Skoðað er hvers vegna þau eru erfið og rýnt í það hvernig best er að snúa sér í þeim málum. Farið er yfir nokkrar aðferðir sem gagnast jafningja-stjórnendum og þær ræddar og síðan æfðar.
Um er að ræða krefjandi og lifandi námskeið (vinnustofu) sem hefur að markmiði að efla þá stjórnendur sem eru að stjórna jafningjum en hafa ekki mannaforráð.
Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu:
Kennari
Eyþór Eðvarðsson, vinnusálfræðingur
Meira sjálfstraust og öryggi í stjórnun jafningja
Þekkja mismunandi leiðir til að stýra fólki
Skilningur á þeim kröfum og væntingum sem gerðar eru
Þekkja helstu mistök jafningjastjórnenda
Meira sjálfstraust og öryggi í stjórnun jafningja
Þekkja mismunandi leiðir til að stýra fólki
Skilningur á þeim kröfum og væntingum sem gerðar eru
Þekkja helstu mistök jafningjastjórnenda
Fyrirlestrur, hæfnisþjálfun, virk þátttaka og umræður.
Námskeiðið er aðeins fyrir starfsmenn Isavia sem boðaðir hafa verið á námskeiðið.
Eyþór Eðvarðsson , Eyþór Eðvarðsson
Á eigin hraða
6 klst (3x2)
Mæting.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Starfsmenn Isavia.