Aftur í námskeið

Fríhafnarskólinn | Námskeiðslota 2025 - Verslun

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Námslota Fríhafnarskólans 2025 fyrir verslun nefnist „Sjálfsefling, samvinna og sölufærni “ og verður áhersla skólans á þessi atriði. Námskeiðin eru ýmist kennd í námskerfum eða staðbundin.

Fjallað er meðal annars um sjálfseflingu og sjálfstraust, jákvætt hugarfar og hugarfar gróskuFarið verður í hvernig hægt er að stuðla að meiri sölu og stytta sölutímann (nýsala, krosssala, þarfagreining spurningartækni, mótbárur, lokun). Lögð er áhersla á að starfsfólk öðlist hæfni í menningarlæsi og verði betur í stakk búið til að takast á við fjölbreytileika mannflórunnar. Þá verður á dagskrá framhaldsnámskeið Vínskólans en í fyrri tveimur lotum var grunnnámskeið Vínskólans á dagskrá.  Þá verður fjallað um rétta líkamsbeitingu í verklegri vinnu.

Lotan samanstendur af sex námsþáttum. Hver námsþáttur er sjálfstæður en saman mynda þeir eina heild.

Eftirfarandi námsþættir verða á dagskrá:

Vínskóli - framhaldsnámskeið (í námskerfi og staðbundið)

Sjálfsefling og sjálfstraust - Jákvætt hugarfar-Hugarfar grósku-Frumkvæði (í námskerfi og staðbundið)

Meiri sala og styttri sölutími (í námskerfi og staðbundið)

Verkleg vinna-rétt líkamsbeiting (í námskerfi)

Menningarlæsi (í námskerfi og staðbundið)

Að hafa gaman í vinnunni (staðbundið)

Frekari lýsingar á námskeiðunum verða settar inn síðar.

Fyrirkomulag
Rafræn og staðbundin námskeið
Gott að vita
 
Umsjón
Fræðslusetrið Starfsmennt
Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Pétursdóttir og Ingibjörg Hanna Björnsdóttir
Námsform
Staðnám
Tími
  • 16. janúar 2025-00:00

Lengd
0 klst
Mat
Að ljúka námskeiðum í námskerfi og 90% mæting á staðbundin námskeið.
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Starfsfólk Fríhafnarinnar sem á eftir að taka lotur í Fríhafnarskólanum.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
16.01.2025Vínskóli Eymars-framhald, Meiri sala-styttri sölutími, Sjálfsefling og sjálfstraust, Verkleg vinna og rétt líkamsbeiting, Menningarlæsi, Að hafa gaman í vinnunni.00:00Eymar Plédel Jónsson, Tryggvi Þorsteinsson, Ingrid Kuhlman, Ásgerður Guðmundsdóttir, Sigríður Hulda Jónsdóttir, Þóra Valný Yngvadóttir