Aftur í námskeið

Raki og mygla í húsum 1

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Námskeiðið er fyrir þau sem þurfa að eiga við og þekkja vandamál sem stafa af raka og myglu í húsum.

Á námskeiðinu verður fjallað um raka í húsnæði og myglusveppi sem iðulega fylgja viðvarandi raka í byggingarefnum. Farið verður yfir helstu galla á byggingarfræðilegum lausnum og helstu mistök við byggingu húsa sem orsaka leka- og rakavandamál í húsum og hvernig megi koma í veg fyrir þau. Farið verður lauslega í loftun og útreikninga á rakastreymi gegnum byggingarhluta. Fjallað verður um byggingarraka og greiningu rakaskemmda og lífsskilyrði myglusveppa, hvar þeir þrífast og hvernig má finna þá og uppræta.

Efnistök

Að þekkja vandamál sem stafa af völdum raka og myglu í húsum
Að þekkja helstu mistök við byggingu húsa sem orsaka leka- og rakavandamál í húsum
Að þekkja leiðir til að koma í veg fyrir leka- og rakavandamál í húsum

Hæfniviðmið

Að þekkja vandamál sem stafa af völdum raka og myglu í húsum
Að þekkja helstu mistök við byggingu húsa sem orsaka leka- og rakavandamál í húsum
Að þekkja leiðir til að koma í veg fyrir leka- og rakavandamál í húsum

Fyrirkomulag

Fyrirlestur. Hægt að skrá sig á staðnámskeið eða fjarnámskeið (í beinu streymi) með því að haka við "Ég vil skrá mig í fjarnám" í skráningarferlinu. 

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Iðan Fræðslusetri

Samstarfsaðili

Iðan fræðslusetur

Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform

Staðnám

Tími
  • 15. október 2025 klukkan 13:00-19:00

Lengd

6 klst

Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning

Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Byggingaraðilar, einnig umsjónar- og rekstraraðilar fasteigna/bygginga

Dagskrá

Dagsetning

Dagskrá

Tími

Kennari

15.10.2025

Raki og mygla í húsum 1

13:00

Sylgja Sigurjónsdottir og Kristinn Alexandersson