Námskeið finnst ekki

Aftur í námskeið

Grunnnám í bókhaldi

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Í þessu námi verður kennslustofunni breytt í ímyndaða bókhaldsstofu þar sem nemendur fá þjálfun í færslu bókhalds. Námsgögn og aðgangur að bókhaldsforriti eru innifalin í námsgjaldinu. Nemendur mæta með sína eigin fartölvu en fá aðgang að neti.

Nemendur fá þjálfun í færslu fjárhagsbókhalds, sem byggir á verklegum æfingum með raungögnum í raunumhverfi og á rauntíma. Tilvalið nám fyrir þá sem dreymir um að þreyta próf til viðurkenningar bókara en hafa ekki reynslu í færslu bókhalds. Nú gefst þeim sem ekki hafa reynslu í bókhaldsstörfum tækifæri til að stíga skrefið og fá þá þjálfun og færni sem þarf til að starfa við færslu bókhalds.

Kennt er á bókhaldsforritið Reglu þar sem nemendur læra að færa fjárhagsbókhald sem byggir á verklegum æfingum með raungögnum í raunumhverfi á rauntíma. Einnig fjallað um helstu lög og reglugerðir varðandi færslu bókhalds, svo sem lög um bókhald, lög um tekjuskatt og lög um virðisaukaskatt. Jafnframt fjallað um helstu reglur varðandi skil á opinberum gjöldum.

Námið hefst mán. 4. feb. 2019. Kennt er á mán., mið. og fim. í fimm vikur. Kennt er alla jafna frá kl. 9:30 - 12:30 nema mán. 4. feb. er kennt frá kl. 8:30 - 12:30. Samtals 46 klst. og val um þrjár klst. á bókhaldsstofu. 

Sjá nánari námslýsingu hér.

Frekari upplýsingar gefur Hulda Mjöll Hauksdóttir, verkefnastjóri námsins hjá EHÍ, netfang: hulda@hi.is, sími: 525-4929. Hulda er með viðtalstíma alla virka daga frá kl. 9:30 - 11:30.

Fyrirkomulag umsóknar:
Áhugasamir skrá sig hjá Starfsmennt sem sendir umsókn um námið til EHÍ. Hulda verkefnastjóri hjá EHÍ tekur við umsókninni og setur sig í samband við umsækjanda.

Athugið að Starfsmennt greiðir einu sinni fyrir hvern félagsmann á hvert námskeið. 

Nái félagsmaður ekki að ljúka námskeiði sem Starfsmennt hefur greitt fyrir hann og hyggst endurtaka það er bent á starfsmenntasjóði stéttarfélaga.

Hæfniviðmið

Að geta fært fjárhagsbókhald
Að geta stofnað viðskiptavini
Að geta stofnað vörunúmer
Að geta gert sölureikning
Að geta gert vsk uppgjör
Að geta fært laun
Að geta gert leiðréttingar í fjárhag
Að geta gert afstemmingar
Að geta prentað út stöðu fjárhags, skuldunauta og lánardrottna
Að geta skoðað rekstararreikning og efnahagsreikning
Að þekkja helstu lög og reglugerðir varðandi bókhald
Að geta þekkt helstu reglur um skil á opinberum gjöldum

Fyrirkomulag
Fyrirlestrar og verklegar æfingar.
Gott að vita
Tilvalið nám fyrir þá sem dreymir um að þreyta próf til viðurkenningar bókara en hafa ekki reynslu í færslu bókhalds.
Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands.
Umsjón
Fræðslusetrið Starfsmennt
Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Petursdóttir - solborg(hjá)smennt.is
Námsform
Staðnám
Tími
  • 4. febrúar 2019 klukkan 08:30-12:30

Lengd
4 klst
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðildarfélagar Starfsmenntar sem vilja læra að færa bókhald og fá þjálfun í raunverulegu bókhaldsumhverfi með aðgengi að raunverulegum bókhaldsgögnum.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
04.02.2019Grunnnám í bókhaldi08:30Inga Jóna Óskarsdóttir, Anna Bæringsdóttir og Vala Valtýsdóttir.