Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Farið er yfir aðferðir til að meta myglu, mæla raka í byggingarefnum og fara yfir túlkun niðurstaða. Kynntar verða lauslega niðurstöður rannsókna vegna efnanotkunar og annarra aðferða við hreinsun á myglu. Fjallað verður um enduruppbyggingu og verkferla við hreinsun á afmörkuðum rýmum og bent á atriði til umhugsunar við notkun byggingarefna.
Æskilegt er að þátttakendur hafi setið fyrra námskeiðið Raki og mygla í húsum 1 en er þó ekki skilyrði.
Fyrirlestur.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Iðan Fræðslusetri
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 04.03.2026 | Raki og mygla í húsum 2 | 13:00 | Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, Benjamín Ingi Böðvarsson |