Skrifstofan er lokuð 3.-6. nóvember vegna námsferðar starfsfólks. Skráningar á námskeið verða ekki afgreiddar á meðan. Við opnum aftur mánudaginn 9. nóvember.
Aftur í námskeið

Sérstakir launaútreikningar kennara og annars starfsfólks í grunn- og tónlistarskólum

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Farið er yfir grunnforsendur varðandi launaútreikninga kennara í grunn- og tónlistarskólum sem og annars starfsfólks sem vinnur af sér daga meðan á starfstíma skóla stendur. Auk þess verður komið inn á helstu atriði í framkvæmd vinnutíma, samkomulags og útreikninga vegna fæðingarorlofs kennara og tiltekin sérréttindi sem gilda í kjarasamningum kennara. Þá verður farið yfir gögn sem þarf að afla þegar gengið er frá ráðningu svo sem leyfisbréf og upplýsinga úr sakaskrá.

Efnistök

Að kunna skil á grunnatriðum varðandi launaútreikninga starfsfólks stofnana þar sem starfsemin liggur niðri hluta úr ári
Að vita hvaða gögn þurfa að liggja fyrir við ráðningu starfsfólks í grunn- og tónlistarskólum

Hæfniviðmið

Að kunna skil á grunnatriðum varðandi launaútreikninga starfsfólks stofnana þar sem starfsemin liggur niðri hluta úr ári
Að vita hvaða gögn þurfa að liggja fyrir við ráðningu starfsfólks í grunn- og tónlistarskólum

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Umsjón

Bjarni Ómar Haraldsson , Bjarni Ómar Haraldsson

Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Pétursdóttir
Námsform

Á eigin hraða

Lengd

4 klst (3+1)

Mat

Mæting

Verð

28.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Launafulltrúar og þau sem koma að starfsmanna- og kjaramálum