Aftur í námskeið

Trúnaðarmenn Sameykis - Krefjandi samskipti/aðstæður - Vinnustofa kl. 9:15-12:15

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Áhersla er lögð á að þátttakendur tileinki sér nytsamlegar leiðir til að takast á við krefjandi samskipti. Unnið er með greiningu á því hvernig framkoma reynist þátttakendum erfiðust og hvers vegna, hvernig þátttakendum er tamt að bregðast við ágengri framkomu og til hvaða árangurs það leiðir.

Greining á því hvernig:

  • Framkoma/aðstæður reynast þátttakendum erfiðar og hvers vegna – í hverju felst vandinn og hvers vegna geta samskipti verið krefjandi?
  • Þátttakendum er tamt að bregðast við krefjandi aðstæðum s.s. ágengri framkomu og til hvaða árangurs það leiðir – hvað get ég gert til að draga úr vandanum?
  • Sjálfsþekking og sjálfstraust hefur áhrif á færni í samskiptum s.s. að hjúpa sig, sjálfsstjórn, að setja sig í spor annara, hlustun, raunhæfar væntingar til starfsumhverfis, setningar og ,,tækni“ sem gott er að grípa til 

 Lögð er áhersla á: 

  • Styrkleika þátttakenda í ólíkum aðstæðum og leiðir til að temja sér ný viðbrögð og yfirfæra styrkleika frá einum aðstæðum yfir í aðrar – vertu sterki aðilinn!
  • Mikilvægi þess að leiða hugann að ástæðum fyrir vandanum t.d. með sjálfsþekkingu og að setja sig í spor einstaklingsins – hvað býr að baki?
  • Ýmsar leiðir til að halda jafnvægi og vera lausnarmiðaður í erfiðum aðstæðum – auktu færni þína, sjálfsaga, sjálfsöryggi og vertu sá sem er flinkur í að tala við alla og taka á málum!
  • Hvernig má á kurteislegan hátt standa fast á sínu, leiða samtalið á yfirvegaðri braut, setja mörk en sýna um leið skilning – sjálfsstyrkur og rósemi!
  • Leiðir til að vernda sjálfan sig gegn ágengum einstaklingum og taka ekki ásakanir persónulega – taktu þetta ekki inn á þig! V
  • Viðhorf, líta á krefjandi einstaklinga sem áskorun til að þroska eigin samskiptafærni og persónustyrk – reynslubankinn: Þú ert alltaf að læra og styrkjast!

Markmið að trúnaðarmaður:

  • Fái innsýn í hegðun sem einkennir krefjandi samskipti
  • Öðlist meira öryggi til að bregðast rétt við í ágengri framkomu 

Fyrirkomulag
Vinnustofa
Umsjón
Sigríður Hulda Jónsdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Pétursdóttir - solborg(hjá)smennt.is
Námsform
Staðnám
Tími
  • 11. nóvember 2021 klukkan 09:15-12:15

Lengd
3 klst
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð
Markhópur
Trúnaðarmenn Sameykis

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
11.11.2021Krefjandi samskipti/aðstæður09:15Sigríður Hulda Jónsdóttir